Nýr framkvæmdastjóori hjúkrunar í Mörk

Theodóra Hauksdóttir hefur tekið við sem framkvæmdarstjóri hjúkrunar á Mörk hjúkrunarheimili. Hún hefur starfað þar áður sem deildarstjóri og á húsvöktum. Theodóra tók við starfinu af Ragnhildi Hjartardóttur sem starfar nú sem deildarstjóri á Mörk.
Theodóra lauk námi í hjúkrunarfræði frá HÍ 1995 og er með diploma gráður í bæði stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjónustu frá EHÍ og endurhæfingu frá HA. Hún hefur víðtæka klíníska og stjórnunarreynslu af störfum sínum bæði hérlendis og frá Norðurlöndunum.