Kvenfélagið í Hveragerði kom færandi hendi

Kvenfélagið hér í Hveragerði kom færandi hendi í Ás í vikunni þegar það kom með rafknúinn sturtustól með fylgihlutum og færði heimilinu að gjjöf. Sturtustóllinn á svo sannarlega eftir að koma sér vel. Við þökkum kvenfélaginu af alhug fyrir þessa rausnarlegu gjöf.  Á myndinni eru frá vinstri Rúna Einarsdóttir fyrir hönd Áss og fyrir hönd kvenfálagsins þær Ásta Gunnlausdóttir, Hólmfríður Skaftadóttir og Elín María Kjartansdóttir. Enn og aftur, bestu þakkir kvenfélagskonur