Spörum orku, og aura

Þessa dagana er sól hvað hæst á lofti og nær hámarki eftir þrjár vikur. Einnig hefur verið þokkalega hlýtt undanfarna daga.  Mikilli sól og hlýindum utandyra fylgja oftast nær mikill hiti og birta innandyra. Auðvitað aðeins háð húsnæði, gluggum og þess háttar.  Orkunotkun á þessum tíma er meiri en okkur grunar. Þetta benti stjórnarformaður Grundar mér réttilega á fyrir all nokkrum árum.  Við hugsum ekki mikið út í orkusóun í góðviðri. Á köldum vetrardögum pössum við upp á að vera með flesta glugga lokaða og að hafa hurðir ekki opnar út að óþörfu.

En á sumrin vilja þessir hlutir gleymast.  Okkur finnst heitt í herberginu og opnum gluggann til að laga málið. En gleymum ef til vill að skoða hvort ofninn sé stilltur á fjóra eða fimm.  Og um leið og við hleypum kaldara lofti inn í herbergið skynjar ofninn það og hitinn hækkar. Augljós sóun eins og hún gerist best - eða reyndar verst. Þetta finnst mér miður. Og svo ægilega tilgangslaust að hita upp herbergi bara til að hleypa hitanum út, bruðla með orku og kasta peningum, nánast bókstaflega, út um gluggann.

Svipað gildir um ljósin.  Við erum vanaföst og líklega kveikjum við oft á tíðum ljósin frekar af vana en þörf. Maður tekur stundum ekkert eftir því hvort það er kveikt eða slökkt á björtum sumardegi og þá erum við enn og aftur að sóa orku og fjármunum með óþarfa lýsingu.

Mér þætti vænt um ef við tækjum okkur saman um að minnka orkusóun Grundarheimilanna, jafnt nú í sumar sem til lengri framtíðar. Með því spörum við í senn takmarkaða orku heimsins og talsverða fjármuni í rekstri heimilanna. Byrjum á því að athuga hvort lækka megi í ofninum áður en við opnum gluggann. Áður en við kveikjum ljósin væri gott að við sannfærðum okkur um að það sé nauðsynlegt. Saman getum við áorkað heilmiklu í sparnaði fyrir umhverfi okkar og budduna.

 

Kveðja og góða helgi,

Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna