Skiptar skoðanir – sem betur fer

Gleðilegt nýtt ár !!
Síðasti pistill minn um að vera í vinnunni, ekki símanum, vakti nokkur viðbrögð.  Blendin.  Sem er ánægjulegt.  Nokkrir voru umræðunni fegnir og tóku heils hugar undir ábendingar þess efnis um  nauðsyn þess að taka á málinu.  Aðrir voru ósáttir við mínar hugleiðingar og að ég ætti nú barasta ekki að vera með þær á þessum vettvangi.  Hvoru tveggja gagnlegar og skemmtilegar ábendingar sem ég fagna og tek til skoðunar ásamt mínu samstarfsfólki.
Ég er svo feginn að við erum ekki öll sammála og þegar ég fæ frá lesendum pistlanna rökstuddar hugleiðingar í framhaldi af pistlasendingunum, verður oft eitthvað gott til úr því.  Það væri lítið gagn af skrifum mínum ef ég fengi aldrei viðbrögð og ef allir væru sammála mér.  Skiptar skoðanir eru okkur öllum mjög mikilvægar.  Dettur í hug ummæli Víðis (hins eina sanna) að hann tæki alla gagnrýni og ábendingar sem betur mætti fara hjá þríeykinu vel.  Og þau skoðuðu það allt saman af kostgæfni og skiptu stundum um skoðun ef þeim fannst það rökrétt.
Ég hef einstaka sinnum fengið beiðnir frá einstaklingum um að vera teknir af póstlistanum, sem er alveg sjálfsagt mál og ég læt græja það strax.  Önnur leið, ef svo ólíklega vill til að viðkomandi hefur kannski áhuga á innihaldi einhvers pistils síðar, er að eyða honum hið snarasta, tekur um það bil tvær sekúndur.
Heiðarleg skoðanaskipti eru okkur öllum til góðs og hlakka til þeirra á þessu bjarta og fallega ári.
 
Kveðja og góða helgi,
Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna