Aðstandendur

Mikilvægi aðstandenda fyrir heimilismenn er ótvírætt. Það tekur tíma að fóta sig í nýju hlutverki eftir komuna á hjúkrunarheimilið. Hlutverk þeirra breytist oft talsvert og umönnunarbyrði er að stórum hluta létt af aðstandendum sem oft á tíðum hefur verið mjög þung í langan tíma. Þó starfsfólkið sinni nú athöfnum daglegs lífs að miklu leyti þá er samt mikilvægt fyrir aðstandendur að halda áfram að sinna félagslegum þörfum heimilismanns að einhvejru leyti, en hafa meira val um að sinna skemmtilegri hlutum en beinni umönnun. Oft eru aðstandendur óöuggir um hvað má og hvað má ekki á hjúkrunarheimilinu. Það er gott að hafa hugfast að við sem að vinnum á heimilunum erum að vinna á heimilum fólksins, en það býr ekki á okkar vinnustað.
Leitast er við að hafa andrúmsloftið heimilislegt. Ein algeng spurning við komuna á hjúkrunarheimili er hvenær er heimsóknartími? Svar við þvi er einfaldlega þegar og eins lengi eða stutt og heimilismaðurinn sjálfur kýs að hafa heimsókn. Setjist niður með heimilismanni og allt í lagi að það sé á matmálstímum. Það veitir tilbreytingu, spjallið yfir matnum, aðstoðið ef þarf og þið viljið. Það er upplagt að fara í gönguferðir, innandyra og utan, kíkja í bíltúr, á kaffihús, í heimsóknir út í bæ og hvað sem ykkur dettur í hug. (muna bara að láta starfsfólk vita af því). Hugmyndirnar eru margskonar, hægt er að lesa upp, spila tónlist eða á hljóðfæri, spila, spjalla, skoða myndir, baka vöffur, dansa og svo framvegis. Það er tilvalið að að koma einn daginn með ísveislu til að njóta saman, eða uppáhalds mat fólksins ykkar og hægt að biðja starfsfólk um skálar og diska eftir þörfum og svo hjálpast að við frágang, heimilismenn, aðstandendur og starfsfólk. Um að gera að bjóða öðrum heimilismönnum líka, það er bara kærkomin tilbreyting fyrir alla. Það er gefandi fyrir heimilisfólk að fá að bjóða öðrum með sér.
Við sem að vinnum á hjúkrunarheimilunum reynum eftir fremsta megni að koma með tilbreytingu í daglegt líf heimilisfólksins og margir starfsmenn hafa frumkvæði að allskonar skemmtilegum „uppákomum“. Sjúkra- og iðjuþjálfun býður líka upp á allskyns þjónustu og virkni, sem sumir vilja taka þátt í en aðrir alls ekki. Okkar hlutverk er að hvetja til slíkrar þáttöku en við neyðum aldrei neinn sem að gefur skýrt til kynna að hann vilji ekki.
Heimilin standa ykkur opin.
Kveðja og góða helgi
Karl Óttar Einarssoon
forstjóri Grundarheimilanna
Ps: Svæði sem að gaman er að ganga um og heimsækja á okkar heimilum:
Grund: á 3. hæð í miðjunni er falleg stofa og þar er gaman að setjast niður og spjalla. Þar er einnig barnahorn og oft mikið næði. Í starfsmannaborðsal á 1. hæð er velkomið að setjast. Þar er kaffivél sem að stendur öllum til boða að nýta. Hægt er að ganga innandyra yfir tengiganginn á 2. hæð, eða ganga utandyra í porti milli húsa. Ég veit að Grund virkar flókin fyrir þá sem að ganga ekki mikið um þar og erfitt að rata. Endilega spyrjið til vegar, að villast smá getur líka bara verið smá spennandi og hluti af ævintýraferð innanhúss
Ás: Á hjúkrunarheimilinu í kjallaranum er setustofa við hliðina á lyftunni. Einnig er bjart og notalegt að setjast í sófa sem að eru inni í kapellunni, en hún á að standa opin. Kapellann er innst á ganginum í kjallaranum. Í Ási er setustofa og salur í Ásbúð og á Ásbyrgissvæðinu setustofa og salur í Ásbyrgi. Það er gott og gaman að skipta um umhverfi og fyrir þá sem að eru í útideildum að kíkja í kjallarann á hjúkruanrheimilinu eða á milli staða.
Mörk: Aðstaðan á herbergjum heimilisfólks er auðvitað ein sú besa sem að við höfum og þörf á að útbúa rými til heimsókna annarsstaðar því minni en á hinum heimilunum. Það er þó mikilvægt fyrir heimilismenn að breyta til og fara út af herberginu. Í Mörk erum við kapellu með sófa innaf stóra matsalnum á 1.hæð. Við höfum svo auðvitað frábært kaffihús sem að er um að gera að kíkja á.