Tekið vel á móti heimilisfólki frá Víðihlíð í Grindavík

Grund hefur boðið heimilisfólki frá Víðihlíð í Grindavík að koma  á heimilið og í dag hefur starfsfólk verið að undirbúa komu fólksins. Búið er að koma upp rúmum og aðstöðu í vinnustofunni á fjórðu hæð í austurhúsi. Alls hafa um sjö manns þegið að koma á Grund, starfsfólk hefur boðið fram starfskrafta sína á vaktir og það verður tekið vel á móti fólkinu nú um kvöldmatarleytið.