|
Þvottahús Markar er í Hveragerði. Jarðgufa er notuð til að þvo, þurrka
og strauja og orkukostnaður vegna þessa er einungis brot af því sem það
myndi kosta ef nota ætti rafmagn. Nýtt og byltingarkennt
taumerkingarkerfi var nýlega tekið í notkun í Mörk. Í hverja flík
heimilisfólks er saumuð lítil örflaga. Flagan inniheldur upplýsingar um
viðkomandi heimilismann, á hvaða deild hann er, í hvaða herbergi
o.s.frv. Auk þess eru upplýsingar um á hvaða þvottakerfi beri að þvo
flíkina. Þessi nýjung eykur verulega afhendingaröryggi, þ.e. mun minni
líkur eru á að flíkin týnist eða fari á rangan stað. Allur tækjabúnaður
er af nýjustu og bestu gerð. Heimilisfólk Markar borgar ekki fyrir
þvott á fatnaði sínum.
|