| Holtavegshringur |
|
|
|
|
4.5 km, 1 klst. miðað við 4.5 km/klst meðalgönguhraða. Farið er með Mörkinni og yfir Suðurlandsbrautina við Langholtsveg. Svo strax Farið er sem göngustígurinn liggur niður með leikskólanum Steinahlíð og síðan meðfram Sæbrautinni til norðurs. Stundum má sjá börnin í Steinahlíð, sem er á vinstri hönd, að leik í rjóðrum trjánna í garðinum sem er stór og fjölbreyttur. Eftir smá brekku tengist göngustígurinn gangstétt við Snekkjuvog og við beygjum nú til hægri inn á Barðavog og göngum norður hann. Eftir tæplega 100 m. kemur göngustígurinn aftur í ljós milli grenitrjánna til hægri og beygt er inn í hann og honum núna fylgt að Skeiðarvog. Farið er yfir Skeiðarvoginn og haldið áfram eftir göngustígnum norður að Holtavegi og beygt upp hann. Látum ekki útstillingarnar í klámbúðinni á hægri hönd trufla gönguna lítum heldur til vinstri á frístundaheimili barna sem er nágranni klámbúðarinnar, hinu megin við Holtaveginn. Við höldum nú áfram yfir Langholtsveginn á gönguljósunum þar sem gangbrautarvörður hefur varðskýli á horninu, til að leita skjóls í, þegar hann er ekki að passa börnin sem ætla yfir götuna. (Austan megin við Langholtsveginn, við gönguljósið er greipt í gangstéttina minningarskjöldur um Helga Hóseasson „mótmælanda Íslands“). Áfram er haldið niður í Laugardalinn framhjá Langholtsskóla sem er þá á vinstri hönd og KFUM og KFUK á hægri hönd og svo kemur glæsilegur leikskóli þar lengra. Við förum beint áfram inn á göngustíg sem liggur upp austan við Fjölskyldugarðinn, sem er þá á hægri hönd. Þegar komið er upp á móts við TBR hallirnar kemur göngustígur, til vinstri, upp með norður enda hallanna sem við beygjum inn í og göngum upp, yfir þverstíg sem kemur þar og áfram upp göngustíginn með blokkinni sem þar kemur og alla leið upp á Áfheimana. Við göngum nú suður Álfheima að Glæsibæ og förum þar yfir á göngustíginn fyrir aftan OLÍS stöðina og fylgjum honum síðan yfir Skeiðarvog að Mörk. |
| Forsíða |
| Starfsmenn |
| Þjónusta |
| Sagan |
| Matseðill |
| Eden |
| Húsnæðið |
| Sækja um dvöl |
| Starfsumsókn |
| Gönguleiðir |