| Maí - júní 2011 |
|
|
|
Sumarið er loksins komiðKæru aðstandendur, heimilisfólk og starfsfólk. GönguferðirVið hvetjum aðstandendur til að bjóða heimilisfólki út undir bert loft þegar þeir koma í heimsókn, skreppa í stuttar gönguferðir, það nægir alveg að fara hringinn í kringum húsið ef heimilismaðurinn er of veikburða til að ganga meira. Með hjólastól er hægt að fara í skemmtilegar gönguferðir um næsta nágrenni. TilbreytingVið könnumst öll við það hversu notalegt það er þegar eitthvað óvænt og skemmtilegt kemur upp í lífi okkar. Eitthvað sem brýtur upp hversdaginn. Notum hugmyndaflugið hvort sem það eru aðstandendur, heimilisfólk eða starfsfólk. Hrindum skemmtilegum hugmyndum í framkvæmd. Breskir og danskir dagarUndanfarið höfum við verið með daga tileinkaða löndum. Fyrst voru það danskir dagar og svo breskir nýverið í vikunni þegar Vilhjálmur Bretaprins og Kate Middleton gengu í það heilaga. Á kaffihúsinu okkar var hægt að kaupa kaffibolla með dönsku súkkulaði á dönskum dögum og Mackintosh á bresku dögunum. Þá lágu frammi dönsk tímarit á dönskum dögum og á sjálfan brúðkaupsdaginn var haldið heljarinnar partý í húsinu, þar sem allir er vettlingi gátu valdið skörtuðu höttum og dreyptu á sérrítári. Ef ykkur dettur í hug eitthvað í þessum dúr sem við gætum gert til að brydda upp á í dagsins önn þá endilega látið okkur vita. Við minnum svo á að virka daga er kaffihúsið okkar á 1. hæð opið og á laugardögum er hægt að kaupa þar nýbakaðar vöfflur með kaffi- eða súkkulaðibollanum og þá frá klukkan 14 – 17. Létt messa í MörkSunnudaginn 8.maí kl. 14.00 verður létt-messa í kapellu Markar. Umsjón með guðsþjónustunni hefur Fjóla Haraldsdóttir djákni. Um tónlistarflutning sér Þorvaldur Halldórsson. Vöfflukaffi fyrir alla á 1. hæðÍ dag, fimmtudaginn 5. maí, er kaffisamsæti í salnum á 1. hæðinni í Mörk. Heimilismenn og starfsfólk ætlar að koma saman af öllum heimilum og hvert heimili sér um að koma með nýbakaðar vöfflur með sér á kaffiborðið. Með þessum hætti fá heimilismenn tækifæri til að kynnast betur heimilismönnum á öðrum heimilum. Rúsínan í pylsuendanum er að þær Björg, Signý og Jóhanna, söngkonur og íslenskar dífur, ætla að koma í heimsókn og syngja og skemmta. Allir aðstandendur velkomnir í félagiðNýlega var haldinn fyrsti fundur undirbúningshóps að stofnun aðstandendafélags á Mörk. Að lokinni kynningu á fundarmönnum fór fram almennt spjall um hver tilgangur aðstandendafélags ætti að vera. Það er að sjálfsögðu ekki enn fastmótað, ýmsar skoðanir komu fram en menn voru almennt sammála um að það ætti að stuðla að því að skapa gæðastundir fyrir heimilismenn, sem og heimilismanna og aðstandenda saman. Hópurinn sem stendur að undirbúningi ætlar að byrja á upplýsingaöflun, finna út hvað er gert á öðrum hjúkrunarheimilum, hvernig fyrirkomulag slíkra félaga er almennt . Tölvupóstföng einstaklinganna í hópnum fylgja hér á eftir og eru aðstandendur hvattir til að hafa samband og bjóða fram krafta sína eða forvitnast nánar um starfsemina. Netföngin eru: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ; Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ; Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. |
| Forsíða |
| Starfsmenn |
| Þjónusta |
| Sagan |
| Matseðill |
| Eden |
| Húsnæðið |
| Sækja um dvöl |
| Starfsumsókn |
| Gönguleiðir |