| Þorragleðin tókst með eindæmum vel |
|
|
|
|
Síðastliðinn föstudag, á bóndadaginn, var þorragleði í Mörk. Öll borð í sal á fyrstu hæð voru dekkuð hvítum dúkum og kertaljósum og síðan var heimilisfólki og starfsfólki boðið niður í þorramat. Íbúar á Suðurlandsbraut 58 - 62 komu líka í þorramatinn. Undir borðhaldinu lék Markarbandið. Þá var dóttir Margrétar Björnsdóttur heimiliskonu, Soffía Sigurðardóttir, með þjóðlegan leikþátt sem hún sýndi með regulegu millibili meðan borðað var. Þegar fólk var búið að gæða sér á þessum ljúffengu kræsingum ákváðu einhverjir að nýta tækifærið og stíga dans við dunandi harmonikkutóna Markarbandsins.
|
| Forsíða |
| Starfsmenn |
| Þjónusta |
| Sagan |
| Matseðill |
| Eden |
| Húsnæðið |
| Sækja um dvöl |
| Starfsumsókn |
| Gönguleiðir |