Mörk, hjúkrunarheimili

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Vika góðverkanna hafin

Góðverkadagarnir í Mörk hófust í morgun en þeir standa til 25. febrúar næstkomandi. Markmiðið er að bæta starfsandann og samvinnu meðal starfsfólks með hjálpsemi og vináttu – að gera góðverk. Framkvæmdin felst í að hvetja starfsfólk til athafna og umhugsunar um að láta gott af sér leiða, sýna náungakærleik og vináttu, hjálpa öðrum og gera góðverk. Verefnið stendur alla vikuna og tengiliður okkar hér í Mörk er Kristín Stefánsdóttir iðjuþjálfi. Nánar um góðverkavikuna á www.godverkin.is

 
Stemmning á Woodstock hátíðinni í Mörk

Það var fjör í Mörkinni á Woodstock hátíðinni sem haldin var í síðustu viku. Sumir máluðu friðarmerkið á ennið á sér, einhverjir fundu gamlar gallabuxur og rifu í stíl við tískuna sem að var við lýði um 1969 eða drógu fram litríkar mussur og pils. Nokkrir bundu um höfuðið slæður eða bindi og eyddu deginum berfættir. Þorvaldur kokkur og hans fólk bauð upp á veitingar í anda hátíðarinnar sem voru torkennilegar skonsur með spennandi efnablöndu, marglitar sælgætispillur og heimabruggað krækiberjavin...Hver veit nema Woodstock verði endurvakið að sumri til og fái þá heitið Mörkstock?

Nánar...
 
Frábærar gönguleiðir í nágrenni heimilisins

Guðjón Petersen siglingafræðingur býr í nágrenni hjúkrunarheimilisins og gengur gjarnan sér til heilsubótar og skemmtunar. Hann er oft með staðsetningartæki (GPS) á sér og mælir þá vegalengdina sem hann fer og tímann sem göngutúrinn tekur. Hann bjó áður í Breiðholti og Grafarvogi og gekk töluvert þar en það var ekki fyrr en hann flutti í Mörk sem hann tók að kynna sér gönguleiðirnar þar í næsta nágranni. Guðjón hefur sér til gamans tekið saman upplýsingar um nokkrar gönguleiðir og gefið okkur góðfúslegt leyfi til að birta þær á heimasíðu heimilisins. Aðstandendur geta fengið lánaðan hjólastól vilji þeir bjóða heimilismanni í göngutúr sem kannski hefur ekki tök á að ganga sjálfur.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 18

Viðburðir

Íbúðir fyrir 60+

Heimilispósturinn

hp.jpg