| Eden hugmyndafræðin |
|
|
|
|
Fyrir um það bil sextán árum hóf læknirinn Bill Thomas að vinna sem yfirlæknir á hjúkrunarheimili í Bandaríkjunum en hann hafði fram að því starfað á bráðadeild spítala. Hann sinnti sínu starfi af alúð og einn daginn þegar hann var á stofugangi urðu straumhvörf í þeim hugmyndum sem hann hafði um hjúkrunarheimili. Hann settist niður hjá roskinni konu sem var rúmföst og spurði hana hvernig henni liði. Hún var lítil og fíngerð en með stór augu. Hún hikaði andartak en horfði svo beint í augu hans og sagði: Ég er fjarska einmana. Við því átti læknirinn engin ráð og engin lyf. Orð gömlu konunnar fylgdu honum og einn daginn ákvað hann að setjast niður á setustofu öldrunarheimilisins og vera þar nokkra daga. Reyna á sjálfum sér hvernig það væri að vera heimilismaður á hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Hann komst að því að þrennt amaði að hjá fólkinu fyrir utan alla krankleika. Þetta voru einmanaleiki, leiði og vanmáttarkennd. Bill Thomas fékk tækifæri til að stofna heimiliskömmu eftir þennan eftirminnilega atburð og hefur nú í tvo áratugi verið að þróa þessa hugmyndafræði sem hann nefndir Eden. Heimilin sem fylgja hugmyndafræðinni eru orðin mörg hundruð, í Bandaríkjunum, Ástralíu og víða um Evrópu. Hjúkrunarheimilið Mörk er fyrsta heimilið í Reykjavík sem ákveður að fylgja Eden hugmyndafræðinni. Lögð er áhersla á að heimilismenn haldi sjálfræði sínu þegar þeir flytja á heimilið. Aðstandendur eru ávallt velkomnir og hvattir til að koma sem oftast. Aðstandendur eru hvattir til að leggja af mörkum, taka þátt í daglegu lífi og vera virkir inni á heimilinu þar sem þeirra aðstandandi býr. Í samráði við heimilismenn og aðstandendur er reynt að finna út hvaða siði og venjur fólk vill halda í þegar það flytur hingað í Mörk. Eden hjálparar svokallaðir eru börn, gæludýr og lifandi plöntur. Nú búa gæludýr í Mörk, börn koma vikulega bæði frá leikskóla í nágrenni en einnig úr skólum og nú er á sumrin verið að rækta grænmeti í kössum á öllum heimilunum ellefu. Allir heimilismenn hafa sitt rúmgóða herbergi með sér snyrtingu og þeir koma með sín húsgögn í þær vistarverur, sín rúmföt ef þeir kjósa, rúmteppi, gardínur og svo framvegis. Þá leggjum við áherslu á að heimilismenn geti haft eitthvað af sínum persónulegu munum í sameiginlegu rými. Það getur oft verið gott fyrir heimilisfólk að sjá málverk í stofu sem það hefur átt í tugi ára eða fallegt borð, stól eða lampa og jafnvel getur þetta gefið því öryggiskennd á nýju heimili. Áhugaverðar vefslóðir fyrir þá sem vilja kynna sér Eden hugmyndafræðina nánar: www.edenalt.org, |
| Forsíða |
| Starfsmenn |
| Þjónusta |
| Sagan |
| Matseðill |
| Eden |
| Húsnæðið |
| Sækja um dvöl |
| Starfsumsókn |
| Gönguleiðir |